1.10.2009 | 22:21
Úrslitin í Poweradebikarnum fara fram á sunnudag
Á Sunnudag fara fram úrslitaleikirnir í Poweradebikarnum og fara báðir leikirnir fram í Laugardalshöll. Hjá konunum mætast Hamar og KR og byrjar þeirra leikur kl:13:00. Hjá köllunum mætast Suðurnesjaliðin Njarðvík og Grindavík og hefst sá leikur kl:15:30.
Hamarstúlkur unnu Hauka í undanúrslitum 73-84 og í hinum leiknum sigruðu KR-stúlkur lið Grindavíkur 67-37.
Njarðvík vann KR í DHL höllinni hjá köllunum í undanúrslitum 85-94, eftir jafnan og spennandi leik. Í hinum leiknum sigraði Grindavík lið Snæfells 95-89. Þessi fjögur lið ásamt Keflavík munu berjast um þá titla sem í boði eru á komandi tímabili.
Íslandsmótið hefst svo fimmtudaginn 15.okt hjá köllunum en miðvikudaginn 14.okt hjá konunum.
Áfram körfubolti.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.9.2009 | 23:55
Sigur á FSu
Við skagamenn sigruðum FSu í kvöld á Valsmótinu.
Smá umfjöllun hér http://www.ia.is/?sid_id=21250&tre_rod=001|014|&tId=2 .
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2009 | 23:32
Tap í Borgarnesi
Við í Skaganum töpuðum í kvöld á móti Skallagrími í æfingaleik.
Umfjöllun hér http://www.ia.is/?sid_id=21250&tre_rod=001|014|&tId=2
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2009 | 21:32
Æfingaleikur í Borgarnesi
Fyrsti æfingaleikur okkar Skagamann verður í Borgarnesi á morgun. Leikurinn hefst um kl.19:30.
Eins og allir vita féllu Borgnesingar úr úrvalsdeild á síðustu leiktíð en við komum upp úr 2.deild, þetta verður því án efa hörkuleikur. Skallarnir munu leika með spilandi þjálfara í vetur og það ætti að vera góður styrkur fyrir þá að vera með erlendan leikmann í sínum röðum!.
Létt umfjöllun kemur eftir leik annað kvöld.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.8.2009 | 23:04
Tap hjá báðum landsliðunum
Tveir landsleikir fóru fram í dag í Evrópukeppninni, leikið var í Smáranum í Kópavogi. Í ár eru 50 ár liðin frá fyrsta landsleik Íslands í körfuknattleik, þetta var í fyrsta skipti sem tveir landsleikir fara fram í Evrópukeppninni í körfu sama dag.
Stelpurnar byrjuðu daginn og tóku á móti Svartfjallalandi. Þessi leikur var aldrei spennandi enda Svartfjallaland með geysi sterkt lið og þær lönduðu öruggum 62-77 sigri, Svartfjallaland sigraði riðilinn en Ísland lendir í 5 sæti af 6 þjóðum. Stigahæstar hjá Íslandi vöru Helena Sverrisdóttir með 23 stig, þrátt fyrir að spila meitt alla leikinn, þetta sýnir að þessi stelpa er orðin virkilega fær í þessari íþróttagrein, Birna Valgarðsdóttir setti 18 stig og tók einnig 8 fráköst.
Strákarnir tóku á móti Austurríki og þessi leikur var einnig leikin í Smáranum. Ísland spilaði alls ekki nógu vel í þessum leik, það vantaði alla baráttu sem hefur verið í síðustu leikjum hjá liðinu. Austurríkismenn voru skrefinu á undan allan fyrri hálfleikinn og voru 34-45 yfir. Íslensku strákarnir áttu ágætan 4 leikhluta og náðu að minka muninn niðrí 2 stig, en þá sigu Austurríkismenn framúr aftur og lönduðu 65-76 sigri. Nú er þessari B-deild lokið, þegar riðillin er gerður upp er margt jákvætt og nokkrir góðir sigrar, EN það vantaði samt ALLAN stöðuleika hjá liðinu í þessari keppni.
Góða umfjöllun og viðtöl um báða leikina, má finna inná www.karfan.is og www.sport.is .
Mynd: www.karfan.is
Áfram körfubolti.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.8.2009 | 20:59
Góður sigur á Dönum
Ísland vann góðan sigur á Dönum í Álaborg í dag. Þessi leikur var liður í B-deild Evrópukeppninnar. Ísland var mun betri aðilinn allan leikinn og leiddi í hálfleik 35-28.
Danir náðu að minka muninn niðrí 1.stig um miðjan 3.leikhluta, en þá sögðu strákarnir hingað og ekki lengra og héldu Dönum í hæfilegri fjærlægð eftir það og sigruðu 66-54. Adam Darboe í Danska liðinu var stigahæstur þeirra með 10.stig, Darboe er Íslendingum vel kunnur en hann spilaði með Grindvíkingum tímabilið 2007/2008.
Jón Arnór var stigahæstur með 21.stig, Logi Gunnarsson 13, Fannar Ólafsson og Páll Axel Vilbergsson voru með 10 stig hvor. Næsti leikur liðsins fer fram á laugardag í Smáranum kl. 16.00 en þá koma Hollendingar í heimsókn.
Íslensku stelpurnar spiluðu svo við Holland í B-deild Evrópukeppninnar á Ásvöllum í kvöld. Þær Íslensku töpuðu leiknum 70-52. Hollendingar voru tíu stigum yfir í hálfleik og sigruðu að lokum með 18 stigum. Helena Sverrisdóttir var stigahæst með 17.stig og Hildur Sigurðardóttir kom næst með 14.
Mynd: www.kki.is (Stefán Þór Borgþórsson).
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.7.2009 | 18:45
Blikarnir verða að styrkja körfuhringina
Breiðablik sem er mitt uppeldisfélag, hefur komist að samkomulagi við hinn bandaríska John Davis um að spila með liðinu á næsta tímabili. Það er ljóst að þetta er sterkur leikmaður og mun hann styrkja Kópavogsliðið mikið!. Miða við tilþrifin í þessu myndbandið hér að neðan, verður að styrkja körfuhringina í Smáranum
.
Myndbandið með John Davis a22.video2.blip.tv/2410001035503/AMIProductions-635.wmv
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.7.2009 | 22:25
Magnaður leikur!!
Þetta er einfaldlega besta íþrótt í heimi!. Örugglega einhver svakalegasti körfuboltaleikur allra tíma, allavega hér á landi.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.7.2009 | 15:55
Heimaleikur í 1.umferð á móti Þór Þorl
Töfluröðin fyrir 1.deild karla er komin. Áætlað er að deildin hefjist 9. október. Við í ÍA erum einu nýliðarnir því ÍG sem kom upp með okkur gáfu sæti frá sér, og í þeirra stað kemur Höttur en þeir féllu á síðasta tímabili úr 1.deild.
Við fáum heimaleik í fyrstu umferð, sem er auðvita kostur því það er alltaf gott að byrja mótið á heimavelli. Mínir gömlu félagar í Þór Þorlákshöfn koma og það verður örugglega erfiður leikur, þeir verða allavega með einn útlending.
Svona lítur 1. Umferðin út.
Haukar - Skallagrímur
Valur - UMFH
KFÍ - Þór Ak.
Höttur - Ármann
ÍA - Þór Þorl.
Við mætum svo Ármanni í 2.umferð úti.
Kveðja / Dóri.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.7.2009 | 15:46
Vaknaður til lífsins
Undiritaður hefur ekkert skrifað hér síðustu mánuði, en nú verður breyting á því!
.
Ég mun fjalla mest um Meistaraflokk ÍA en við leikum nú í 1.deild, eftir langa veru í 2.deild. Auðvita munu aðrar körfufréttir koma inn á milli.
Kveðja / Dóri - Leikmaður ÍA.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 0
- Frá upphafi: 20735
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 0
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar



dullari
sporttv
ithrottir
emmcee
gunnarfreyr
nbablogg
nba
gellarinn
ehrally
ibvkarfa
skallinn
jabbi
![logo litid 197807[3]](/img/tncache/s100/7f/karfa/img/logo_litid_197807_3_921259.jpg)
![powerade2009 logo[1]](/img/tncache/s100/7f/karfa/img/powerade2009_logo_1.jpg)
![IslandAusturrikiAgust09jbo2[1]](/img/tncache/s100/7f/karfa/img/islandausturrikiagust09jbo2_1.jpg)
